Search

Home > Fotbolti.net > Númer sex eins og Tinna Mark og LeBron
Podcast: Fotbolti.net
Episode:

Númer sex eins og Tinna Mark og LeBron

Category: Sports & Recreation
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2022-05-02 16:11:00
Description: Bjarni Mark Duffield er staddur á Íslandi í stuttu fríi þar sem ekki var spilað í norsku B-deildinni um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Bjarna í spjall sem hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan og í öllum hlaðvarpsveitum. Bjarni er leikmaður Start í Noregi en hann söðlaði um og gekk í raðir félagsins eftir nokkur í ár í Svíþjóð þar á undan. Hann er Siglfirðingur sem skipti yfir í KA þegar hann komst nálægt meistaraflokksaldri og lék með KA í efstu deild tímabilið 2018. Síðan hafði hann verið í Svíþjóð þangað til á þessu ári þegar hann fékk símtalið frá Start. Bjarni fer yfir skiptin í Start, nýja leikstöðu, fyrstu mánuðina í Start, spjallið sem hann átti við Túfa, landsliðið og ýmislegt fleira á rúmum tuttugu mínútum.
Total Play: 0