Search

Home > Fotbolti.net > Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi
Podcast: Fotbolti.net
Episode:

Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi

Category: Sports & Recreation
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2022-07-02 14:30:00
Description: Viltu kynnast aðstoðarþjálfara landsliðsins betur? Þá er óhætt að mæla með hlustun á þessum þætti. Ásmundur Haraldsson var svokölluð barnastjarna í KR en fór svo í háskólanám til Bandaríkjanna þar sem hann varð mikill Kani. Hann bjóst ekki við því að koma aftur heim en endaði nú á því að gera það. Ásmundur var senter á sínum leikmannaferli og var einu sinni markakóngur 3. deildar. Fljótlega beindist hugurinn að þjálfun þó skórnir hafi seint farið upp á hillu. Flestir landsmenn kynntust Ása fyrst þegar hann var þjálfari í þáttunum KF Nörd sem fóru sigurför um Ísland, en í dag er hann aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins sem tekur þátt á EM seinna í þessum mánuði. Þetta er annað Evrópumótið sem Ási er að fara á í þessu hlutverki. Ásmundur, sem er mikilvægur hlekkur í þessu frábæra landsliði, settist niður með undirrituðum á hóteli landsliðsins í Herzogenaurach þar sem liðið er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið.
Total Play: 0