|
Description:
|
|
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. ágúst.
Íþróttafréttamenn fara yfir fótboltafréttir vikunnar og af nægu er að taka. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Henry Birgir Gunnarsson í þætti vikunnar.
Spjótin beinast að forystu KSÍ sem verst alvarlegum ásökunum, áhugaverður landsliðshópur var kynntur í vikunni og andrúmsloftið á fréttamannafundinum var óhefðbundið, framundan eru þrír landsleikir á Laugardalsvelli í undankeppni HM.
Þá er rætt um endurkomu Cristiano Ronaldo til Manchester United og íslenska boltann. |