|
Description:
|
|
Ungstirnin er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
Þáttastjórnendur eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
Í þessum öðrum þætti er fjallað um Eduardo Camavinga (Stade Rennais), Calvin Stengz (AZ Alkmaar) og Marco Kana (Anderlecht).
Skoðað er hvaða efnilegu leikmenn gætu brotist inn í aðallið sinna félaga og látið að sér kveða í ensku úrvalsdeildinni.
Þá eru gestir þáttarins Ágúst Eðvald Hlynsson og Kristall Máni Ingason, leikmenn Víkings. |