|
Description:
|
|
Það eru rúmar tvær vikur í að keppni í Lengjudeild kvenna hefjist og í nýjasta þætti Heimavallarins er spáð í spilin fyrir tímabilið. Gestur þáttarins er knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og hún fer yfir málin með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
Meðal efnis:
-Spáin opinberuð: 1.sæti-10.sæti
-Hverjar verða mikilvægastar í sínum liðum?
-Hvaða efnilegu leikmönnum þurfum við að fylgjast með?
-Hvaða lið fara upp í Pepsi Max?
-Hvaða leikmenn verða bestar í Lengjudeildinni?
-Hvaða lið falla?
Meðal efnis í fréttapakkanum:
-Undankeppni EM keyrð aftur í gang
-Landsliðsfyrirliðinn orðuð við Barcelona - búin að ákveða sig?
-Enska knattspyrnusambandið til skammar
-Sif berst fyrir réttindum óléttra knattspyrnukvenna
-Kona vikunnar - mögnuð endurkoma
-Helena skiptir Fjölni út fyrir Pepsi Max mörkin
-Heitustu félagaskiptin korter í mót
-Loksins fótbolti og æfingaleikjahryna
-Augnablik vinnur óþekktar Eyjakonur
-Afhverju var KR með einn varamann í æfingaleik?
-Er besti markmaðurinn kominn í Selfoss? |