|
Description:
|
|
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar.
Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins.
Í þessum þætti er farið yfir fyrri hluta Inkasso-deildarinnar en 11. umferðin lauk í gær. Sérfræðingarnir fara yfir stöðuna á hverju liði, ræða spútnik lið umferðarinnar, fallbaráttuna og toppbaráttuna.
Í seinni hluta þáttar velja sérfræðingarnir síðan úrvalslið fyrri umferðarinnar, besta leikmann og besta þjálfarann.
Sérfræðingarnir eru þeir Baldvin Már Borgarson, fréttaritari Fótbolta.net og Úlfur Blandon þjálfari Þróttar Vogum í 2. deildinni. |