|
Description:
|
|
Gestir Miðjunnar í þessari viku eru fyrrum landsliðsmennirnir Ríkharður Daðason og Rúnar Kristinsson. Í þættinum var farið aftur til 5. september 1998 og rifjaður upp leikur Íslands og Frakklands á Laugardalsvellinum.
Seinna í þættinum var rifjaður upp leikur Frakklands og Íslands í París 1999 í sömu keppni.
Einnig var rætt um leikinn þegar þessar sömu þjóðir mættust á EM í Frakklandi 2016 og í lok þáttar var aðeins farið yfir landsliðið í dag en á morgun velur Erik Hamrén landsliðsþjálfari landsliðshóp fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni Evrópumótsins 2020.
Ísland mætir heimsmeisturum Frakklands 25. mars en nokkrum dögum áður er leikur gegn Andorra. |