|
Description:
|
|
Eiður Aron Sigurbjörnsson, varnarmaður Vals, mætti í langt og gott spjall við Innkastið eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í dag.
Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu við hann á Hlíðarenda með Íslandsmeistarabikarinn sjálfan.
Eiður Aron var á einlægu nótunum í spjallinu og opnaði sig meðal annars um það að hann hafi verið kominn í skuldir vegna spilafíknar á tíma sínum í atvinnumennsku erlendis. Eiður spilaði póker fram á nótt og það hafði áhrif á frammistöðu hans á vellinum. |