|
Description:
|
|
Það hefur ýmislegt gengið á hjá Manchester United á þessu tímabili en gengi liðsins hefur verið undir væntingum.
Siggi Hlö og Jóhann Skúli Jónsson kíktu á Magnús Má Einarsson í Miðjuna í dag og ræddu ítarlega um Manchester United.
Meðal efnis: Gengi Manchester United í vetur, Jose Mourinho og stælarnir í honum, vandræðin í vörninni, frammistaða Paul Pogba, vakning hjá Martial, markaþurrð Lukaku, hreinsun næsta sumar, sigurinn á Juventus, fyrirliðamálin, söngvarnir á Old Trafford og margt fleira. |