Search

Home > Samfélagið >
Podcast: Samfélagið
Episode:

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:00
Publish Date: 2025-12-10 13:00:00
Description: Fátækt er talsvert algengari og dýpri meðal fólks af erlendum uppruna en hjá fólki með íslenskan bakgrunn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem unnin var fyrir forsætisráðherra og er hluti rannsóknarverkefnis sem hófst árið 2022 um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað. Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að aukin hætta á fátækt meðal nýfluttra innflytjenda endurspegli samspil margra þátta. Skortur á félagslegu tengslaneti, tungumálahindranir og misræmi milli menntunar og krafna íslensks vinnumarkaðar geti aukið líkur á fátækt. Halldór S. Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafadeild, kemur til okkar og ræðir við okkur um niðurstöður skýrslunnar. Í gær var greint frá því að tvö félög myndu fá fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu til að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu. Félögin tvö eru Evrópuhreyfingin og Heimssýn, og næstu tvo daga ætlum við að fjalla um þessar hreyfingar sem gera má ráð fyrir að verði áberandi í umræðunni um Evrópumál á næstunni. Og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, til okkar. Í dag ætlar hún að tala um Omega-3 fitusýrur og hvers vegna þær eru mikilvægar. Tónlist úr þættinum: HJÁLMAR & DJ FLUGVÉL OG GEIMSKIP - Tilvonandi vor. STEVIE WONDER - Sir Duke.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6