Search

Home > Samfélagið > ADHD hjá konum, lokasprettur COP30 og draugaskipið Jamestown
Podcast: Samfélagið
Episode:

ADHD hjá konum, lokasprettur COP30 og draugaskipið Jamestown

Category: Society & Culture
Duration: 00:56:10
Publish Date: 2025-11-24 13:00:00
Description: ADHD-samtökin gáfu á dögunum út nýjan fræðslubækling sem nefnist „Stúlkur, konur og ADHD.“ Honum er ætlað að varpa ljósi á stöðu stúlkna og kvenna með ADHD og hvernig ADHD hefur áhrif á líf þeirra. Birtingarmyndir ADHD koma fram með öðrum hætti hjá stúlkum og drengjum sem iðulega gerir það að verkum að umhverfið áttar sig ekki á þeim erfiðleikum sem stúlkur og konur glíma við dag hvern. Þær Inga Arons og Elín H. Hinriksdóttir settust niður með mér í morgun og sögðu mér allt um ADHD hjá konum. Laura Sólveig Lefort Scheefer, formaður ungra umhverfissinna, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, hafa fært okkur reglulega pistla um framgang mála á COP30 loftslagsráðstefnunni í Brasilíu. Nú er komið að síðasta pistlinum. Í dag fáum við að heyra af lokaspretti ráðstefnunnar þar sem ríki reyndu að koma sér saman um tillögur að vegvísi til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Og í lok þáttar kíkjum við líka í heimsókn í Þjóðskjalasafn Íslands, eins og við gerum reglulega, til að grúska í skjölum. Í dag hittum við Helga Valdimar Viðarsson Biering, sérfræðing, til að rýna í skjöl sem tengjast strandi draugaskipsins Jamestown á Suðurnesjum árið 1881. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon. Tónlist þáttar: Maria Bethania - Sonho meu
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6