Search

Home > Samfélagið > Tímamótastyrkur til að koma skikki á vatnsmálin, Refsiábyrgð ráðherra - er hún til? Leiðsögumaðurinn Vigdís Finnbogadóttir
Podcast: Samfélagið
Episode:

Tímamótastyrkur til að koma skikki á vatnsmálin, Refsiábyrgð ráðherra - er hún til? Leiðsögumaðurinn Vigdís Finnbogadóttir

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:00
Publish Date: 2025-01-13 13:00:00
Description: Í dag fjöllum við um vatn eina dýrmætustu auðlind Íslands. Þekking okkar á ástandi vatns er takmörkuð og ásókn í það eykst stöðugt. Umhverfis- og orkustofnun hlaut á dögunum 3,5 milljarða styrk frá Evrópusambandinu til að koma betra skikki á vatnamál á Íslandi, fráveitukerfi Ísafjarðarbæjar og tjörnin í Reykjavík eru á meðal þess sem nýtur góðs af. Við ræðum þetta við Hólmfríði Þorsteinsdóttur sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun. Hvernig höldum við ráðherrum ábyrgum ef þeir brjóta af sér í starfi? Tilheyra ráðherra elítuhópi sem verður aldrei sóttur til saka vegna brota í embætti? Að mati Hauks Loga Karlssonar, dósents í lögfræði við Háskólann á Birföst, er núverandi kerfi til að halda ráðherrum ábyrgum ómarkvisst, og jafnvel ógagnlegt. Aðeins einu sinni hefur ráðherra verið sóttur til saka vegna meintra brota í embætti, sem endaði ekki betur en svo að ferlið var kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Pétur Magnússon ræddi við Hauk Loga um refsiábyrgð ráðherra og hinn sérkennilega Landsdóm. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, færir okkur gersemar úr safninu. Að þessu sinni rifjar hún leiðsögumannastörf Vigdísar Finnbogadóttur. Tónlist í þættinum: ÁSGEIR TRAUSTI - Lifandi Vatnið. Bright Eyes - Shell games
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6