Search

Home > Samfélagið > Skaðaminnkunarstefna, Jólaplöntur og fyrsta rafmagnsljósið
Podcast: Samfélagið
Episode:

Skaðaminnkunarstefna, Jólaplöntur og fyrsta rafmagnsljósið

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:08
Publish Date: 2024-12-02 13:00:00
Description: Fyrir rúmu ári ákvað heilbrigðisráðherra að ráðast í heildarendurskoðun á áfengis- og vímuefnastefnu íslenskra stjórnvalda. Hluti af þeirri vinnu var að skipa starfshóp sem átti að semja tillögur að skaðaminnkunarstefnu, þeirri fyrstu sem skrifuð hafði verið á Íslandi. Og í lok síðustu viku skilaði hópurinn umfangsmikilli lokaskýrslu sem inniheldur meðal annars greiningu á stöðu skaðaminnkunar á Íslandi og tillögur að skaðaminnkunarstefnu. Í dag fáum við til okkar Helgu Sif Friðjónsdóttur, formann starfshópsins, og köfum með henni ofan í skýrsluna. Hvernig held ég jólastjörnunni minni fallegri alla aðventuna og yfir jólin? Er minni lykt af jólaeplum í dag heldur en fyrir nokkrum áratugum? Þetta ætla garðyrkjufræðingar hjá Grasagarðinum í Reykjavík að fara yfir í sérstöku fræðsluerindi í blómum prýddum garðskála garðsins á morgun kl. 17. Við fáum til okkar einn þeirra, Svavar Skúla Jónsson og ræðum tengsl plöntuheimsins við jólin, vinsælar jólaplöntur og fleira. Og í lok þáttar kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV í heimsókn með rafmagnaða upptöku úr safni RÚV. Tónlist og stef: GP, Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Tegund. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). Sigurður Guðmundsson - Orðin mín Borges, Lô, Nascimento, Milton - Cravo e canela.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6