Search

Home > Samfélagið > Innslag frá COP29 í Bakú, loftslagsspjall við Mikael Allan Mikaelsson, málfarsspjall um stórforeldri
Podcast: Samfélagið
Episode:

Innslag frá COP29 í Bakú, loftslagsspjall við Mikael Allan Mikaelsson, málfarsspjall um stórforeldri

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:06
Publish Date: 2024-11-19 13:00:00
Description: COP29, loftslagsráðstefna Sameinuðuþjóðanna, fer nú fram í Bakú í Aserbaísjan. Meðal yfirlýstra markmiða ráðstefnunnar er að marka stefnu til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis á heimsvísu. Gestgjafaþjóð ráðstefnunnar, Aserbaísjan, er hins vegar mikil jarðefnaeldsneytisþjóð, og erfitt gæti orðið að sannfæra stjórnvöld þar í landi, og víðar, að breyta út af venjunni. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, er á ráðstefnunni. Hún hefur verið með regluleg innslög í Samfélaginu undanfarið og í dag segir hún okkur aðeins nánar frá jarðefnaeldsneytisþjóðinni Aserbaísjan. Og við höldum okkur við loftslagsmálin, vindum okkur í loftslagsspjallið að þessu sinni við Mikael Allan Mikaelsson, sérfræðing í loftslagsmálum og stefnumótun. Hann starfaði í tæpan áratug fyrir bresku utanríkis-, orku- og iðnaðarráðuneytin, hlaut MBE-orðu bresku krúnunnar - kannski einhvers konar hliðstæðu íslensku fálkaorðunnar, starfar nú hjá Stocholm Environment Institute og er einn af helstu höfundum nýja evrópska loftslagsáhættumatsins - en við ætlum ekki bara að ræða feril hans og afrek heldur fyrst og fremst heyra hvað honum finnst um stöðuna í loftslagsmálum, vænlegar aðgerðir og áherslur til framtíðar. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur, mætir í málfarsspjall og ræðir meðal annars orðið stórforeldri. Tónlist: Mars Volta - Aegis.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6