Search

Home > Samfélagið > Eiga ömmur og afar að fara á námskeið? Töfrar fráveitunnar, pistill um gloppuskýrslu í loftslagsmálum
Podcast: Samfélagið
Episode:

Eiga ömmur og afar að fara á námskeið? Töfrar fráveitunnar, pistill um gloppuskýrslu í loftslagsmálum

Category: Society & Culture
Duration: 00:57:37
Publish Date: 2024-10-31 13:00:00
Description: Verðandi eða nýbakaðir foreldrar fara stundum á ýmis námskeið; tengslanámskeið, svefnnámskeið, brjóstagjafarnámskeið og svo framvegis - en hvað með ömmur og afa? Þurfa þau að fara á námskeið? Við ræðum við Sveindísi Önnu Jóhannsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa, sem hefur haldið sérstök námskeið fyrir ömmur og afa. Í þessu kristallast líka samskipti kynslóðanna sem hafa verið til umræðu í Samfélaginu undanfarið. Síðan ætlum við að komast að því hvað verðum um skólp eftir að það fer niður um niðurfallið eða klósettrörið. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi, fékk Þorstein Narfason, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlists Vesturlands, í heimsókn í hljóðver RÚV á Borgarnesi, til að fræðast um fráveitukerfi sveitarfélaga og náttúrulegar lausnir á hreinsun skólps. Í síðustu vika gaf umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna út hina árlegu gloppuskýrslu, sem fjallar um árangur ríkja heims í baráttunni gegn loftslagsbeytingum - eða kannski öllu heldur árangursleysi. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, rýnir í skýrsluna í pistli dagsins og setur hana í samhengi við komandi kosningar. Tónlist og stef: Teitur Magnússon - Orna. STEREOLAB - Captain Easychord. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). ÁSGEIR TRAUSTI - Afterglow.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6