Search

Home > Samfélagið > Endalok mannúðaraðstoðar á Gaza, dánaraðstoð, sykursýkislyf og Alzheimer
Podcast: Samfélagið
Episode:

Endalok mannúðaraðstoðar á Gaza, dánaraðstoð, sykursýkislyf og Alzheimer

Category: Society & Culture
Duration: 01:00:44
Publish Date: 2024-10-30 13:00:00
Description: Við fjöllum um hlutskipti barna á Gaza, nú þegar ísraelska þingið Knesset hefur sett lög sem gera Palestínu-flóttamannahjálpinni, stofnun á vegum Sameinuðu þjóðarinnar, ógerlegt að halda áfram mannúðaraðstoð sinni á svæðinu. Birna Þórarinsdóttir Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi kemur til okkar hér rétt á eftir. Í gærkvöldi var fjallað um dánaraðstoð í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þar heyrðum við sögu Jóns Grímssonar, íslendings sem var búsettur í Washington-ríki í Bandaríkjunum og sótti um dánaraðstoð eftir að hafa greinst með illvígt lungnakrabbamein. Dánaraðstoð er lögleg í Washington-ríki og á nokkrum öðrum stöðum í Bandaríkjunum og Evrópu – og nú kalla sumir eftir að dánaraðstoð verði gerð lögleg hér á landi. Við ræðum við Gunnhildi Kjerúlf Birgisdóttur, fréttamann Kveiks sem greindi frá sögu Jóns í gærkvöldi – og Katrínu Eddu Snjólaugsdóttur, sérfræðing í líknandi hjúkrun. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, heldur áfram að segja okkur frá ferðum sínum í Kólumbíu, þar sem hún er á mikilvægri ráðstefnu um lífræðilegan fjölbreytileika. Síðan kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari, til okkar í lok þáttar og ræðir sykursýkislyf og heilahrörnunarsjúkdóma. Tónlist: COLDPLAY - Don't Panic. BAGGALÚTUR - Sólskinið í Dakota.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6