Search

Home > Samfélagið > Fjármálatips, Foreldrahús, stýrivextir, umhverfisáhyggjur ungs fólks
Podcast: Samfélagið
Episode:

Fjármálatips, Foreldrahús, stýrivextir, umhverfisáhyggjur ungs fólks

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:00
Publish Date: 2024-10-02 13:00:00
Description: Í tæp fjögur ár hefur línuritið sem sýnir meginvexti Seðlabankans hækkað með mislöngum hléum, grafið sýnir ójafnan en brattan tröppugang upp á við - en í dag leitaði það örlítið niður á við aftur. Peningastefnunefnd lækkaði stýrivextina úr 9,25 prósentum í slétt níu. Þetta eru tímamót en óljóst hvaða þýðingu þau hafa og vextirnir enn helvíti háir svo vitnað sé í seðlabankastjóra sjálfan. Við fengum viðbrögð nokkurra vegfarenda í Skeifunni í Reykjavík við þessum tíðindum. Facebook-hópurinn Fjármálatips er einn sá vinsælasti á landinu með yfir fimmtíu þúsund meðlimi. Við ætlum að ræða við Sindra Má Friðriksson, hann stýrir Fjármálatips og raunar hópnum Verðbréfatips líka og fær nokkuð sérstaka innsýn í fjárhag landsmanna. Hefur það hvað börn og ungmenni læra í dag eitthvað með umhverfismál og áskoranir mannkyns að gera. Svarið er já en það virðist ekki augljóst í augum allra. Við fáum pistil um þetta frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi. Síðan heimsækjum við Foreldrahús, ráðgjafamiðstöð fyrir börn og foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga-, og vímuefnavanda. Við ætlum að fræðast um starfsemi Foreldrahúsa, um hvernig miðstöðin nálgast yfirstandandi umræðu um vopnaburð, ofbeldi og vímuefnaneyslu meðal barna og ungmenna, og hvort starfsemin sé í hættu vegna viðvarandi fjárskorts.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6