Search

Home > Samfélagið > Staða hinsegin fólks á vinnumarkaði, líforka, rautt kjöt, sykursýki og fjármögnun á eigin tortímingu
Podcast: Samfélagið
Episode:

Staða hinsegin fólks á vinnumarkaði, líforka, rautt kjöt, sykursýki og fjármögnun á eigin tortímingu

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:00
Publish Date: 2024-09-19 13:00:00
Description: Í dag fjöllum við um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Oft er talað um glerþakið þegar rætt er um hindranir sem konur mæta á vinnumarkaði; þá sérstaklega hvað varðar kjör og stöðuhækkanir. Hindrar glerþakið líka uppgang hinsegin fólks á atvinnumarkaði? Við ræðum þetta og fleira við Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing hjá stéttarfélaginu Visku. Árum saman hafa dýrahræ verið urðuð hér á landi, þvert á lög og reglur. Nú - eða í það minnsta á næstu árum stendur til bóta. Við ætlum að ræða áform um líforkuver á Dysnesi við Eyjafjörð. Kristín Helga Schiöth, framkvæmdastjóri Líforkuvers ehf. kemur til okkar og segir okkur frá stöðunni og því hvað þarf að gerast í náinni framtíð - og það er mikið í húfi - því verði ekki breytingar gætu íslensk matvæli verið stimpluð óörugg á meginlandi Evrópu. Er hið opinbera of duglegt að styrkja verkefni sem eru skaðleg fyrir umhverfið? Erum við að fjármagna okkar eigin útrýmingu? Þetta er á meðal þess sem Stefán Gíslason, umhverfisstjórnarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um í pistli dagsins. Edda Olgudóttir, kemur svo til okkar í vísindaspjall og ræðir nýjar rannsóknir sem benda til þess að neysla á rauðu kjöti auki líkurnar á því að fólk fái sykursýki af gerð tvö. Tónlist: Otis Redding - Wonderful World. GDRN - 10 dropar (Upptaka úr Tónatal).
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6