Search

Home > Samfélagið > Brúarvinnuflokkar sameina krafta sýna í Elliðaárdal, Baskasetur og hátíð á Djúpavík, dýraspjall um sæotur
Podcast: Samfélagið
Episode:

Brúarvinnuflokkar sameina krafta sýna í Elliðaárdal, Baskasetur og hátíð á Djúpavík, dýraspjall um sæotur

Category: Society & Culture
Duration: 00:55:00
Publish Date: 2024-06-07 13:00:00
Description: Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar eru tveir, annar í Vík í Mýrdal og hinn á Hvammstanga og þessa dagana sameina þeir krafta sína í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Brúin yfir Elliðaár, neðan við Árbæjarstíflu, þurfti allsherjar yfirhalningu - vegriðið orðið slappt, steypan léleg, það þarf að skipta um legur og þensluraufar og hvaðeina. Við kíktum á framkvæmdina á dögunum og ræddum við VIlhjálm Arnórsson, yfirverkstjóra flokksins frá Hvammstanga og matráðinn Hrefnu Magnúsdóttur sem tilheyrir flokknum frá Vík - bæði hafa verið í brúarvinnuflokki í átján ár. Við heyrum svo í Ólafi J. Engilbertssyni, hann er formaður Baskavinafélagsins og er staddur á Djúpavík á ströndum. Þar á að setja á fót sérstakt Baskasetur og þessa dagana er þar hátíð þar sem menningu Baska og tengslum þeirra við Ísland er fagnað með sýningu, vinnustofum, málþingi og tónleikum. Vera Illugadóttir kemur svo til okkar í lok þáttar í dýraspjall - til umræðu er hinn frægi sæotur 841. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir. Tónlist: Lónlí blú bojs - Heim í Búðardal. THE KINKS - Sunny Afternoon. Olga Guðrún Árnadóttir - Kötturinn Sem Gufaði Upp.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6