Search

Home > Samfélagið > Sorpbrennsla, frí molta í Gaju og málfarsspjall: misseri, sumarmál, hrafnahret o.fl.
Podcast: Samfélagið
Episode:

Sorpbrennsla, frí molta í Gaju og málfarsspjall: misseri, sumarmál, hrafnahret o.fl.

Category: Society & Culture
Duration: 00:59:23
Publish Date: 2024-04-23 13:00:00
Description: Við fjöllum um það sem kallað hefur verið hátækni-sorpbrennsla. Helgi Þór Ingason prófessor í verkfræði við Háskólann í Reykjavík fór fyrir hópi sem vann úttekt á fýsileika þess að reisa slíka brennslu hér á landi, enda stendur til að hætta nær allri urðun sorps. Ævar Örn Jósepsson ræddi um niðurstöður hópsins við Helga Þór. Við heyrum það á eftir. Og við ætlum að halda okkur í úrgangsmálunum því Gunnar Dofri Ólafsson, samskiptastjóri Sorpu, kemur til okkar og ræðir um aðra af tveimur afurðum Gas- og jarðgerðarstöðvarinnar Gaju í Álfsnesi, moltuna! Á sumardaginn fyrsta býðst öllum sem vilja að koma þangað og fá moltu til að nota í garðinn og kynna sér þann farveg sem matarleifar frá heimilum á höfuðborgarsvæðinu rata nú í. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall - við ætlum að ræða ýmis gömul orð tengd tíðarfari og árstíma. Einkum sumri, sem er handan við hornið. Tónlist: MANNAKORN - Óralangt Í Burt. PAUL SIMON - Still Crazy After All These Years. GRAFÍK - Komdu Út.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6