Search

Home > Samfélagið > Erfið mál á Grænlandi, Læst úti - þjóðfundur ungs fólks, málfarsspjall um bændur
Podcast: Samfélagið
Episode:

Erfið mál á Grænlandi, Læst úti - þjóðfundur ungs fólks, málfarsspjall um bændur

Category: Society & Culture
Duration: 00:56:16
Publish Date: 2024-03-05 13:00:00
Description: Við hringjum til Nuuk í Grænlandi og tölum við Ingu Dóru Guðmundsdóttur eins og við gerum nokkuð reglulega. Að þessu sinni ætlum við að fjalla um tvö alvarleg mál. Um 150 grænlenskar konur hafa stefnt danska ríkinu vegna lykkjuherferðarinnar sem svo er kölluð en á sjöunda áratugnum var þúsundum stúlkna og ungra kvenna gert að fá lykkjuna - oft án þess að vera upplýstar um það. Við ræðum þetta við Ingu Dóru og sömuleiðis snjóflóð sem féll fyrir nokkrum dögum nálægt Nuuk þar sem tveir rúmlega tvítugir menn létust. Á föstudaginn blésu Öryrkjabandalag íslands, Landssamband ungmennafélaga og Landssamtök stúdenta til málþings í hugmyndahúsinu Grósku undir yfirskriftinni Læst úti: Gerum eitthvað í því. Á málþinginu fjallaði ungt fólk um hindranir sem hamla þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu, fötlunarfordóma og hvernig megi hugsa hlutina upp á nýtt svo öll geti tekið jafnan þátt. Við ræðum við tvo þátttakendur á málþinginu þau Eið Welding og Evu Brá Önnudóttur. Anna Sigríður Þráinsdótir, málfarsráðunautur kemur svo til okkar í spjall um íslenskt mál - og við ræðum orðaforða tengdan bændum.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6