|
Description:
|
|
Í Svartsengi starfrækir HS Orka jarðvarmavirkjun eins og flestir vita. En þar er líka unnið að því að fullnýta það sem fellur til við orkuvinnsluna, varma, koltvísýring, ylsjó og margt fleira, í Auðlindagarðinum sem svo er kallaður. Bláa lónið er líklega augljósasta dæmið um hvernig þetta fer saman. Við heimsóttum Svartsengi fyrr í sumar og ræddum þar við Dagnýju Jónsdóttur, hún er deildarstjóri Auðlindagarðsins. Við kynnum okkur Félag um barnabókasafn, þar eru nokkrar hugsjónakonur sem sumar hafa unnið að því í tugi ára að láta drauminn um íslenskt barnabókasafn verða að veruleika. Það hafa ýmsar hindranir verið í veginum - sú stærsta lítur að fjármagni til þess að koma bókunum úr pappakössunum í framtíðarhúsnæði. Svo heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands eins og hefð er fyrir. Þar tekur á móti okkur Ragnhildur Anna Kjartansdóttir, skjalavörður. Hún ætlar að sýna okkur merkileg skjöl frá upphafi átjándu aldar og rýna í þau með okkur. Málfarsmínútan verður svo á sínum stað. |