|
Description:
|
|
Nýjar rannsóknir sýna að líklega er fimmta, jafnvel fjórða hver manneskja á Íslandi, er með einhverskonar lesblindu. Félag lesblindra gagnrýnir skólakerfið fyrir að mæta ekki þörfum þessara nemenda, sem oft eru álitnir tregir eða áhugalausir. VIð ræðum við Guðmund Skúla Johnsen formann félags lesblindra. Við kynnum okkur nýjar flokkunartunnur sem hafa verið að dúkka upp undanfarið í borginni. Borgartunnan er hún kölluð og hún er snjöll. Baldur Snorrason arkitekt segir okkur allt um þær. Málfarsmínúta er á sveimi og svo er pistill frá umhverfissálfræðingnum Páli Líndal í lok þáttar. |