Search

Home > Samfélagið > Hvar er best að búa, kváradagurinn, málfar og hubba húlle húlle húlle
Podcast: Samfélagið
Episode:

Hvar er best að búa, kváradagurinn, málfar og hubba húlle húlle húlle

Category: Society & Culture
Duration: 00:00:00
Publish Date: 2023-03-20 13:00:00
Description: Hvort er betra að búa á landsbyggðunum eða á höfuðborgarsvæðinu? Við þessari spurningu fæst örugglega ekkert endanlegt svar, sitt sýnist hverjum og margt í mörgu eins og sagt er. Það stöðvar okkur sem þjóð þó ekki í að takast reglulega á um þetta og það er rætt um launamun, og láglauna- og hálaunasvæði, rafmagns- og kyndingarkostnað, leikskólagjöld- og biðtíma, leigu- og húsnæðisverð, vegalengdir og samgöngur og þjónustustig og matvælaverð- og framboð og hvaðeina. Við ræðum við Sigríði Elínu Þórðardóttur forstöðumann þróunarsviðs Byggðastofnunar og Sigurður Árnason sérfræðingur við sama svið, en þar má finna gögn og samatektir um hvaðeina sem tengist þessum eilífðar átökum. Á morgun verður kváradeginum fagnað. Það er dagur kynsegin fólks, kannski dálítið í anda bóndadags og konudags. Hingað koma þau Regn Sólmundur Evu, sem starfar með Q-félagi hinsegin stúdenta og Ólöf Bjarki Antons, sem er formaður Trans Ísland. Þau ætla að ræða við okkur um ýmis mál sem snúa að samfélagi kynsegin fólks og auðvitað um þennan dag - kváradaginn. Málfarsmínúta Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV með upptöku frá 1987 þegar ísraelsku listamennirnir Datner og Kushnir heimsóttu Ísland eftir að hafa slegið í gegn með lag sem er almennt kallað Hubbahulle.
Total Play: 0

Users also like

300+ Episodes
Between The .. 50+     8
100+ Episodes
Grínland 200+     6

Some more Podcasts by RÚV

30+ Episodes
Útivarp 10+     1
1K+ Episodes
Lestin 10+    
500+ Episodes
Í ljósi s .. 900+     10+
40+ Episodes
Sirkus Jóns .. 10+     2
300+ Episodes
Sveifludansa .. 10+    
10+ Episodes
Af minnisst .. 20+    
30+ Episodes
Ameríski dr .. 30+    
100+ Episodes
Grínland 200+     6