|
Description:
|
|
Matvælaráðherra heimilaði innflutning á gæludýrum fólks á flótta undan stríðinu í Úkraínu í mars og nú tekur Matvælastofnun við umsóknum frá þeim sem vilja koma með gæludýr frá Úkraínu til Íslands. Hrund Hólm deildarstjóri hjá MAST. Hvernig er hægt að nýta stafræna tækni til miðlunar, skráningar og varðveislu menningararfsins? Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður Gunnarsstofnunar skipuleggur málþing um stafrænan menningararf. Eiríkur Örn Þorsteinsson hjá Sorpu segir okkur hvert við eigum að fleygja snakkpokunum í ruslarabbi dagsins. Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur okkur pistil um áhrif veðurs á sálarlífið. |