|
Description:
|
|
Við sáum fréttir af því í vikunni að hitastig á Suðurskautslandinu hefði mælst langt yfir venjulegu hitastigi á þessum árstíma. Á einni stöð munaði hvorki meira né minna en 40 gráðum. Og það er svipað uppi á teningnum við Norður heimskautið - methiti sumstaðar þar sem munar allt að 30 gráðum. Hvað er á seyði? Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur segir okkur það. Enn og aftur mótmælir ungt fólk á Austurvelli. Alsherjarverkföll fyrir loftslagið eru haldin víða um heim í dag . Íslensk ungmenni verða með og krefja stjórnvöld og stórfyrirtæki um alvöru loftlagsaðgerðir. Finnur Ricart Andrason er ungur umhverfissinni. Málfarsmínútan er á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Dýraspjallið er nýr dagskrárliður í Samfélaginu. Að þessu sinni segir Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, okkur frá leðurblökum. |