|
Description:
|
|
Það brá mörgum þegar kvikmyndastjarnan Will Smith snöggreiddist og sló aðra kvikmyndastjörnu, Chris Rock, í andlitið á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt. Rósa María Hjörvar doktorsnemi í bókmenntafræði rannsakar reiði í bókmenntum. Hún ræðir við okkur um þetta atvik og almennt um reiði. Við heyrum eina málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Við lítum við í Öskju þar sem meistaranemar í umhverfis- og auðlindafræðum undirbúa Græna daga og ræðum þar við Emmu Soffíu Emilsdóttur varaformann Gaia Iceland, sem er félag nema í umhverfis- og auðlindafræðum. Við hleypum af stokkunum nýjum dagskrárlið; ruslarabbi. Ræðum við Eirík Þorsteinsson sérfræðing hjá Sorpu. Svo rifjum við upp gullmola úr safni útvarpsins með Helgu Láru Þorsteinsdóttur safnstjóra. Að þessu sinni heyrðum við umfjöllun um ökumann ársins árið 1978. |