|
Description:
|
|
Bjarni Diðrik Sigurðsson skógfræðingur og prófessor við LbhÍ Edda Sigurdís Oddsdóttir sviðstjóri rannsóknarsviðs hjá Skógræktinni: Síðustu daga hefur skógræktin haldið fagráðstefnu, heljarinnar uppskeruhátíð aðila úr öllum áttum sem saman koma með upplýsingar, rannsóknir og framtíðarsýn. St. Jósefsspítali í Hafnarfirði tók til starfa árið 1926 en hefur undanfarin áratug staðið auður. Húsið hefur nú fengið nýtt líf sem Lífsgæðasætur þar sem hinir ýmsu aðilar bjóða þjónustu sem snertir með einum eða öðrum hætti á þessu víðfeðma hugtaki "lífsgæði". Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir, verkefnastjóri Lífgæðasetursins kemur til okkar segir frá húsinu, starfseminni og hugmyndinni sem liggur að baki. Ruslarabb um hvernig draga má úr úrgangi. Stefán Gíslason með umhverfispistil. |