|
Description:
|
|
Kristín Jónsdóttir jarðskjálftafræðingur: verkefni um ljósleiðara á Vatnajökli sem er notaður sem jarðskjálftamælir. Ljósleiðarar liggja víða um land og milli landa. Það gæti verið tækifæri til jarðskjálftavöktunar á áður óþekktum skala. Sigurð Jóhannesson forstöðumann Hagfræðistofnunarinnar: Afhverju borgar það sig að rafvæða hafnir en ekki að niðurgreiða kaup á rafbílum? Hagfræðistofnun hefur gefið út skýrslu þar sem kostnaður og ábati af nokkrum helstu aðgerðum stjórnvalda í loftlagsmálum er metinn - og það kemur eitt og annað forvitnilegt í ljós. Dýraspjall (e) Guðný Vala Þorsteinsdóttir, örverusérfræðingur/ grjótætusérfræðingur/geimlíffræðingur kemur í dýraspjallið til okkar og segir frá hinum mögnuðu og lífseigu örverum. |