|
Description:
|
|
Birta Bjargardóttir bankastjóri: Við í Samfélaginu verðu með annan fótinn vestur á fjörðum. Við ætlum að heimsækja Blábankann á Þingeyri við Dýrafjörð. Þar er starfrækt samfélags- og nýsköpunarmiðstöð sem gegnir fjölmörgum hlutverkum. Við fáum að vita allt um það. Björk Bjarnadóttir: Björk er á leið í alþjóðlega keppni í hafragrautsgerð í Skotlandi, já þessi grái vellingur sem fólk annað hvort elskar eða hatar er keppnisefni, það er meiri að segja keppt í tveimur flokkum, annars vegar hefðbundinn hafragrautur, þá eru bara þrjú innihaldsefni leyfð, vatn, hafrar salt og svo sérstakur hafragrautur - þá geta keppendur látið ljós sitt skína því takmörk á innihaldsefnum eru engin. Björk notar meðal annars indversk krydd í sinn graut. Fjölskyldan sem hefur leyft okkur í Samfélaginu að fylgjast með vegferð sinni í átakinu plastlaus september kemur svo til okkar og fer yfir hvernig hefur gengið í mánuðinum - og hvernig þau haldi að gangi áfram. Svo fáum við sérstakan gest til okkar í lok þáttar, sjálf Vera Illugadóttir kemur til okkar og segir okkur frá feitum björnum. |