|
Description:
|
|
Fyrirætlanir frumkvöðulsins og auðkýfingsins Elon Musk um að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter virðast aftur vera komnar á dagskrá eftir að hann dró til baka tilboð sitt upp á meira en 40 milljarða dala. Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka hefur fylgst rækilega með þessu máli. Við tölum um máltækni og leiðir til að gera íslenskunni hærra undir höfði í ört vaxandi tæknisamfélagi. Vilhjálmur Þorsteinsson er framkvæmdastjóri Miðeindar, sem sérhæfir sig í máltækni og gervigreind. Málfarsmínútan er á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Í neytendaspjallinu ræðum við um málefni leigjenda. Kolbrú Villadsen lögfræðingur hjá leigjendaaðstoðinni ræðir málin. |