|
Description:
|
|
Persónuvernd og tengd mál verða sífellt mikilvægari þegar þjónusta og samskipti færast í síauknum mæli á netið og notendahópurinn færist sífellt neðar í aldri. Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ræddi þau mál. Við ræðum persónulega ábyrgð þegar kemur að loftslagsmálum. Ágústa Loftsdóttir, eðlisfræðingur og sérfræðingur í orkumálum. Í ruslarabbi dagsins var rætt við Eirík Örn Þorsteinsson um hvert maður á að fleygja snýtibréfi og eldhúspappír. Páll Líndal umhverfissálfræðingur flutti sinn reglulega pistil. |