|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við tónlistarmanninn Úlf Hansson sem sendir á næstunni frá sér nýja plötu, Arborescence, sem kemur út hjá útgáfufyrirtækinu Figureight. Hreyfingar nýnasista, hvítra þjóðernissinna og kynþáttahatara í Bandaríkjunum, sem stundum er kenndar við regnhlífarhugtakið hitt hægrið (alt-right), styðjast við ýmis listverk og minni úr poppmenningu samtímans til að styðja við lífsskoðanir sínar - oft og tíðum í mikilli andstöðu við listamennina sem hafa skapað umrædd verk. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um hitt hægrið, poppmenningu og nasistadiskó, í þætti dagsins. Birna Guðmundsdóttir fjallar í dag um ungar konur og Instagram - hún kannar áhrif og afleiðingar samfélagsmiðilsins á geðheilsu ungra kvenna í dag. Og Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |