|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður haldið áfram að fjalla um Instagram. Undanfarin misseri hefur mikið verið rætt um slæm áhrif samfélagsmiðla á ungt fólk. Rannsóknir sýna að kvíði og þunglyndi hjá unglingsstelpum hafi aukist verulega á síðustu árum en það megi að hluta til rekja til samfélagsmiðla. Birna Guðmundsdóttir ræddi við fjórar sextán ára stelpur um upplifun sína af Instagram, duldum auglýsingum og almennt séð alla þá pólitík sem sprottið hefur upp úr læk kúltúr samfélagsmiðlanna. Stefán Ingvar Vigfússon, nemandi á sviðshöfundabraut við Listaháskóla Íslands, heldur áfram að fjalla um það hvernig maðurinn upplifir sig í samhengi við umhverfi sitt. Í dag beinir hann sjónum sínum að Íslandi, og ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur, dósent í sagnfræði við Háskóla Íslands, sem þræðir sögu Íslands frá landnámi til dagsins í dag á met-tíma. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um munnbitamenningu samfélagsmiðlanna.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson... |