|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um Touko Laaksonen, sem gekk undir dulnefninu Tom of Finland og öðlaðist heimsfrægð á 8. og 9. áratug síðustu aldar fyrir teikningar sínar en fram að því höfðu verk hans farið víða meðal samkynhneigðra sem þurftu þá að glíma við ströng skilyrði ritskoðunar, bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Teikningar hans hafa haft gríðarlega mikil áhrif í ímyndarsköpun og tísku samkynhneigðra karlmanna. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík sýnir í ár ævisögulega kvikmynd um listamanninn. Fjallað verður um kvikmyndirnar Undir trénu eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson og The Square eftir Ruben Östlund. Litið verður við á sýningu sem opnuð var í Þjóðarbókhlöðunni í gær, í tilefni af því að nú eru liðin 30 ár síðan útgáfufyrirtækið Smekkleysa var stofnað. |