|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars komið við á alþjóðlegu þýðendaþingi sem sett var í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur í morgun, en á meðal ræðumanna þar var Hallgrímur Helgason rithöfundur sem talaði um bóklestur, mikilvægi skáldskapar og þýðinga, og sitthvað fleira. Hlustendur Lestarinnar heyra erindið í þætti dagsins. Í síðustu viku lauk sýningum á þriðju röðinni af sjónvarpsþáttunum Tvídröngum, eða Twin Peaks: The Return. Það er óhætt að segja að hún hafi vakið lukku enda eru flestir sammála um að Lynch hafi enn og aftur sannað hversu einstakur kvikmyndagerðamaður hann er. En leiðin að lokaþættinum var ekki beinn og breiður vegur. Áslaug Torfadóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, rýnir í endalok Tvídranga. Það er ákveðin lykt í loftinu - hlýr vindur úti og sólargeislar teygja gyllta arma sína á marglituð laufin. Það er svo sannarlega komið haust. Skólarnir eru byrjaðir og flestir eru komnir úr sumarfríi og farnir að vinna. Þessu fylgir þó einkennileg tilfinning; frelsi sumarsi... |