|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um verkið „A Thousand Tongues“sem sýnt verður í Tjarnabíói dagana 29. september og 1. október næstkomandi. Sýningin er í senn tónleikar og leiksýning. Leikstjóri verksins er hin bandaríska Samantha Shay. Hún hefur unnið með breiðum hópi listamanna; handritshöfundinum José Rivera, tónlistarmönnum á borð við Jodie Landau, Sóleyju, Jófríði Ákadóttur og gjörningalistakonunni Marinu Abramovic. Samantha Shay hefur lengi verið heilluð af Íslandi, enda býr hún hér nú. Hún verður gestur lestarinnar í dag, og segir nánar frá verkinu, sem og sköpun sinni almennt. Öll höfum við heyrt um fellibylinn Harvey sem valdið hefur hamförum á eyjum í Karabía-hafinu og á suðausturströnd Bandaríkjanna. Houston, stærsta borg Texas-fylkis, hefur lent hroðalega í honum en margir flúðu þangað á sínum tíma undan fellibylnum Katrínu og þurfa margir nú því miður að flýja í annað sinn. Ein af ófyrirséðum afleiðingum þessa harmleiks snýr að UGK, goðsagnakenndustu rappsveit... |