|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars skyggnst á bakvið tjöldin í Laugardalshöllinni þar sem undirbúningur fyrir stórtónleika Páls Óskars Hjálmtýssonar fer nú fram, en tónleikarnir verða haldnir á laugardag. Þess verður einnig minnst að um þessar mundir eru 150 ár liðin frá því að franska skáldið Charles Baudelaire andaðist en verk hans höfðu ómæld áhrif á ljóðlistarsögu Vesturlanda. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í dag um undur skákarinnar, sýndir og veruleika, og muninn ná vélum og mönnum
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |