|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að ljósmyndum, tónlist og einkennum Reykjavíkurborgar. Þórsteinn Sigurðsson er nemandi á öðru námsári í Ljósmyndaskólanum. Verk hans hafa vakið talsverða athygli í gegnum árin enda er hann þekktur fyrir að fanga í myndum sínum íslenska jaðarmenningu sem annars lítið ber á. Þórsteinn er gestur Lestarinnar í dag. Einnig verður fjallað um bandarísku hljómsveitina Sparks sem starfrækt hefur verið í heil 45 ár og hefur haft mikil áhrif á aðra tónlistarmenn í gegnum tíðina. Nú nýlega kom út 23. plata sveitarinnar, sú fyrsta í tíu ár, hún nefnist Hipphoptamus og hefur fengið prýðilegar viðtökur, rætt verður við Sigurjón Kjartansson tónlistarmann og handritshöfund um Sparks af því tilefni. Og Stefán Ingvar Vigfússon, nemandi á sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands, heldur áfram að kanna það hvernig maðurinn upplifir sig í samhengi við umhverfi sitt. Í dag er röðin komin að Reykjavíkurborg, Stefán ræðir í þættinum í dag við Gísla Martein Baldursson, f... |