|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um gervigreind, nýja sjónvarpsþætti þar sem ofurhetjur koma við sögu og kvikmyndina Paris, Texas, eftir þýska kvikmyndaleikstjórann Wim Wenders. Apple kynnti nýjustu afurð sína, símann Iphone X, síðastliðinn þriðjudag. Nýjum Iphone fylgir ávallt nýtt útlit og hinar ýmsu stýrikerfisbreytingar. Nýjungin sem vakið hefur hvað mesta athygli er ef til vill innbyggður andlitsgreiningarbúnaður símans, eða facial recognition eins og það kallast á ensku. Aðgangskóði er nú óþarfur þar sem notendur aflæsa símunum með andlitinu. Hannes Högni Vilhjálmsson er dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og rannsakandi við Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík. Lestin leitaði til Hannesar og spurði hann út í andlitsgreiningu. Ofurhetjur hafa verið áberandi bæði í kvikmyndahúsum og á sjónvarpsskjánum undanfarin ár. Þar á framleiðslufyrirtækið Marvel stóran hlut að máli. Áslaug Torfadóttir horfði á nýjustu afurð Marvel, sjónvarpsþættina The Defende... |