|
Description:
|
|
Lestin minnist í dag Sigurðar Pálssonar skálds sem andaðist eftir erfið veikindi í gær. Einnig verður í þættinum í dag hugað að vetrarlínu Geysis sem nefnist Skugga-Sveinn. Línan sækir nafn sitt í hið þekkta leikverk eftir Matthías Jochumsson, og skírskotar til leiktjaldanna sem Sigurður málari Guðmundsson gerði fyrir fyrstu uppsetningu verksins 1862. Lestin fræðist nánar um tengsl fatalínunnar við leikverkið. Gestur þáttarins er yfirhönnuður línunnar, Erna Einarsdóttir.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |