|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um tónlist í kvikmyndum bandaríska leikstjórans Jims Jarmusch en í gær fóru fram tónleikar í Barbican-listamiðstöðinni í Lundúnum sem helgaðir voru henni. Hilmar Örn Hilmarsson kvikmyndatónskáld með meiru ræðir um það hvernig Jarmusch hefur notað tónlist í kvikmyndum sínum í gegnum tíðina. Einnig verður spurt í Lestinni í dag: Hvað veldur því að mannskepnan finnur sig knúna til að leika sér að sannleikanum, beygja hann og snúa? Eru lygar okkur eðlislægar eins og plöntur þurfa vatn? Er í lagi að skrökva eða nýtast við hinar alkunnugu hvítu lygar? Helga Dögg Ólafsdóttir skoðar efnið nánar í þætti dagsins. Viðmælendur hennar verða Sigurlaug Jónasdóttir, sálfræðingur og fíknissviði Landspítalans og Kristinn Kristjánsson, nemandi í Vesturbæjarskóla. Einnig verður í Lestinni í dag hugað að leikstjóranum Alfred Hitchcock en sjónvarpið sýnir sígilda kvikmynd hans Birds annað kvöld. Lestin skoðum athyglisverða baksögu Birds, en myndin er byggð á smás... |