|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um kvikmyndir, tónlist, sjónvarp og dans. Hlustendur verða fræddir um uppruna og menningarlegt gildi dansins twerk, á íslensku tvink, sem sést hefur í flestum hipp -hopp myndböndum síðustu áratuga, en þó aldrei eins mikið og eftir árið 2013. Hver fann upp tvink og hver er tæknin að baki þessum dansi? Svörin fást í Lestinni í dag. Teiknaðir þættir og bíómyndir eru í auknum mæli gerðar með fullorðna áhorfendur í huga. Einhverjir umtöluðustu teiknimyndaþættir síðustu ára eru Bojack Horseman sem sýndir eru á Netflix. Áslaug Torfadóttir kafar ofan í það hvað gerir þessa þætti svona sérstaka. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar síðan um kvikmyndir sem sýndar eru í verðlaunaflokknum Vitrunum á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Og fjallað verður um hljómplötuna Lodger með David Bowie, en upptökustjórinn, Tony Visconti, hefur nú endurhljóðblandað þessa plötu frá árinu 1979, nýja útgáfan er hluti af miklu safni sem kom út á dögunum og helgað er tó... |