|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað verður að gefnu tilefni fjallað um sértrúarsöfnuði, eða ,,cults“, og rætt við Bjarna Randver Sigurvinsson guðfræðing um efnið. Helga Dögg Ólafsdóttir ræðir við Glódísi Guðgeirsdóttur og Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur, verðandi mæður, um óléttutwitter. Myllumerki óléttutwitter sameinar umræður um meðgöngu á samfélagsmiðlinum Twitter. Helga skyggnist bakvið tjöld óléttutwitters þar sem verðandi mæður deila ráðum og sögum af meðgöngu. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi. Og slegið verður á þráðinn til Jónatans Garðarssonar, starfmanns Ríkisútvarpsins, en hann er staddur í Kaupmannahöfn þar sem hljómsveitin Rolling Stones heldur tónleika, í Parken, í kvöld.
Umsjón: Eiríkur Guðmundsson |