|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um breska rithöfundinn Kazuo Ishiguro en tilkynnt var í morgun að hann hlyti Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 2017. Ishiguro fæddist í Nagasaki í Japan árið 1954 en flutti með fjölskyldu sinni til Englands á sjöunda áratug síðustu aldar. Á meðal þekkra verka eftir Ishiguro eru Dreggjar dagsins, Óhuggandi, Veröld hinna vandalausu og Slepptu mér aldrei, en allar hafa þær verið þýddar á íslensku. Síðasta skáldsaga Ishiguros kom út árið 2015 og nefnist The Buried Giant. Lestin rifjar upp feril Ishiguros í dag. Snærós Sindradóttir fjallar um nýja norska þætti um hinseginfólk og spjallar við Daníel E. Arnarson framkvæmdastjóra Samtakanna 78 um þá staðreynd að þrátt fyrir að Ísland sé frjálslyndasta land í heimi, forðast mörg samkynja pör að sýna alúð og ást á opinberum vettvangi. Og haustplata dagsins verður kynnt - hún er að þessu sinni með bandaríska tónlistarmanninum Neil Young, kom út í júní árið 1993, og nefnist Neil Young - Unplugged, og var... |