|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um kvikmyndina Blade Runner 2049 eftir fransk/kanadíska leikstjórann Denis Villeneuve en hér er á ferðinni framhald hinnar þekktu myndar, Blade Runner, eftir breska kvikmyndaleikstjórann Ridley Scott, sem frumsýnd var árið 1982. Einnig verður rætt við Huldar Breiðfjörð rithöfund og handritshöfund en hann skrifaði ásamt leikstjóranum Hafsteini Gunnari Sigurðssyni handrit myndarinnar Undir trénu sem frumsýnd var í síðasta mánuði og hefur hlotið góðar viðtökur. Og hugað verður að sjónvarpsþáttum í Lestinni í dag. Sjónvarpsþættir þar sem sterkar kvenhetjur eru í fyrirrúmi eru að verða sífellt algengari. Kanadísku þættirnir Orphan Black eru í þeim hópi og þar er ekki aðeins ein kvenhetja heldur eru þær fjölmargar. Þær eru samt allar leiknar af sömu konunni. Áslaug Torfadóttir skoðar klónaklúbb í þáttaröðinni Orphan Black í Lestinni í dag.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
... |