|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað að gefnu tilefni um pólitískan rétttrúnað og bókmenntir, en frá því var greint á dögunum að skáldsagan To Kill a Mockingbird eftir bandaríska rithöfundinn Harper Lee, ein frægasta bók sem skrifuð hefur verið um kynþáttamisrétti í Bandaríkjunum, hefði verið tekin af kennsluskrá í skólaumdæmi Mississippi í Bandaríkjunum. Ástæðan er ósætti um orðalag í bókinni. Gestur Lestarinnar í dag verður Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur. Einnig verður í Lestinni í dag rætt við Högna Egilsson tónlistarmann um nýja plötu hans sem nefnist Two Trains. Sagt verður frá splúnkunýrri ævisögu bandaríska tónlistarmannsins Lous Reeds, og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Umsjónarmaður: Eiríkur Guðmundsson |