|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um London Film Festival sem lauk á sunnudag, Sigríður Pétursdóttir var á staðnum og fjallar um nokkrar myndir sem sýndar voru á hátíðinni. Bandaríski rithöfundurinn og blaðamaðurinn Joan Didion gaf út bókina „South and West: From a Notebook“ fyrr á árinu. Að gefnu tilefni skoðar Lestin æviferil Didion, fyrri verk, og nýtútgefna bók en einnig heimildarmynd um hana sem kemur út á Netflix í lok mánaðar. Og bandaríska hljómsveitin The Doors kemur við sögu, að gefnu tilefni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |