|
Description:
|
|
Lestin brunar í dag meðal annars niður í miðborg Reykjavíkur. Í menningarhúsi Borgarbókasafnsins, Grófinni, fá gestir nú innsýn inn í daglegt líf þeirra einstaklinga sem bíða eftir niðurstöðu umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd. Þetta er ljósmyndasýning sem nefnist BIÐ og er hún samstarfsverkefni Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ, Borgarbókasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns Reykjavíkur. Fjallað verður um sýninguna í þætti dagsins. The Buttress er dularfull tónlistarkona frá New Jersey í Bandaríkjunum. Í kringum hana hefur orðið til dyggur söfnuður aðdáenda vítt og breytt um heiminn í gegnum tónlist hennar og skrautlegan framhang á samfélagsmiðlum. Þórður Ingi Jónsson hitti tónlistarkonuna nýlega - við heyrum af fundi þeirra í þætti dagsins. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallað verður að gefnu tilefni um misskilning af ýmsu tagi.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
... |