|
Description:
|
|
Í Lestinni í dag verður þess meðal annars minnst að fyrr í þessum mánuði voru hundrað ár liðin frá því að bandaríski jazzpíanóleikarinn Thelonius Monk fæddist, en hans er nú minnst víða um heim fyrir mikilvægt framlag hans til jazztónlistar á 20. öld og raunar allt fram á þennan dag. Til að byrja með var veipið hugsað sem lausn fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Í dag, örfáum árum síðar, hefur veipið orðið eitthvað mun stærra og meira. Veip er ákveðin tíska, menning og áhugamál. Lestin skoðar veip-kúltúrinn nánar í þætti dagsins. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um kvikmyndina Sumarbörn í leikstjórn Guðrúnar Ragnarsdóttur sem frumsýnd var fyrr í mánuðinum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson |